Önnur starfsemi
Sölufélag garðyrkjumanna vinnur stöðugt að því að þróa leiðir til að koma íslensku grænmeti á matseðilinn. Með tilbúnum lausnum sem spara tíma og peninga stuðlum við að fullnýtingu afurða frá íslenskum grænmetisbændum og tökum virkan þátt í baráttunni gegn matarsóun.
Matartíminn
Matartíminn er í eigu Sölufélags garðyrkjumanna sem kemur æsku landsins á bragðið með íslensku grænmeti í máltíðum fyrir skólamötuneyti. Til að fullnýta uppskeruna býður Matartíminn einnig upp á tilbúnar lausnir og nýskorið ferskt grænmeti fyrir salatbari.
matartiminn.isÍ einum grænum
Í einum grænum er dótturfélag Sölufélags garðyrkjumanna sem býður upp á þjónustu við stóreldhús og mötuneyti ásamt því að pakka forsoðnu grænmeti sem neytendur hafa tekið fagnandi.
ieinumgraenum.is