Portobello sveppir eru í raun fullþroskaðir kastaníusveppir. Portobello sveppir þykja einstaklega bragðgóðir og bera sterkt sveppabragð.
Mjög góðir steiktir á pönnu og fallegir á diski.
Flestir matsveppir tilheyra flokki basíðusveppa en nokkrar undantekningar flokki asksveppa.
Hvað er það svo sem í daglegu tali er kallað sveppur?
Til að skýra það er best að fara yfir lífsferil basíðusveppa. Sveppagró spíra og mynda sveppþræði. Sveppþræðirnir mynda svokallað þel (motta af sveppþráðum). Við hagstæð skilyrði renna sveppþræðirnir saman og upp vex hattur sem í daglegu tali kallast sveppir sem síðar myndar gró sem falla til jarðar og spíra. Þar með lokast hringurinn. Hatturinn er myndaður af sveppþráðum.
Þelið vex um vaxtarefnið og tekur næringu úr því. Sveppaþræðirnir gefa frá sér hvata sem brjóta niður lífrænt efni, sem tekið er upp í gegn um frumuveggina. Sveppir eru ófrumbjarga rotverur þ.e. þeir tillífa ekki en nýta lífræn efni s.s. fjölsykur og eggjahvítuefni sér til lífsviðurværis.
Allir matarsveppir hafa takmarkað geymsluþol. Langbest er að geyma þá í myrkri við 2°C og mikinn raka. Í mikilli birtu þroskast sveppirnir hraðar og gæðin rýrna fljótt.
Sveppi má steikja til að bera fram með ýmsum kjötréttum, einkum þó nautabuffi, svínalundum og svínakjöti. Allir matsveppir eru góðir í súpur og ýmsa pottrétti. Niðurskornir, ferskir sveppir henta vel í salat og pítsur. Einnig er mjög gott að kryddleggja sveppi.
Þar sem verð og framboð sveppa er tiltölulega jafnt allt árið er til lítils að frysta þá; helst er hægt að mæla með því að fólk frysti villta matsveppi sem það hefur sjálft tínt. Sveppir eru hreinsaðir og settir í pott án vatns og látnir malla þar til úr þeim er farið mestallt vatnið; þá eru þeir kældir og settir í frystipoka ásamt soðinu sem myndast við suðuna.
Fjarlægið allar jarðvegsleifar og skolið sveppina snöggt í köldu vatni. Eftir það má borða allt.
Ætur hluti 100 % | |
Innihald í 100 g |
|
Vatn 89 g | |
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 1.8 g | Trefjar 1.4 g |
Kolvetni 4.3 g | Fita 0,5 g |
kj 126 | kcal 30 |
Steinefni |
|
Járn 0.8 mg | Kalk5 mg |
Vítamín |
|
A Ret. ein 17 µg | B1 0.09 mg |
B2 0.52 mg | Niacin 5,5 mg |
C (askorbínsýra) 5 mg |
Sveppir eru próteinríkari en flest annað grænmeti, auk þess eru þeir ríkir af B-vítamíni og steinefnum, járni, kalí og seleni.