Gróður ehf. setti Sólskinstómata á markað vorið 2014 og hefur þeim verið afar vel tekið. Sérstaða þeirra er hin skemmtilega lögun sem minnir helst á litla rauða papriku. Þeir eru týndir alveg rauðir af plöntunni því þannig næst að hámarka bragðgæði tómatsins. Þeir henta í alla matargerð en eru bestir í einum munnbita með lokuð augun :-)
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli. Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum.
Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum afurðum. Mjög gott er að geyma tómata á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið nartað í einn og einn tómat. Börn borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.
Sólskintómatar eru mjög góðir sem hollustusnakk einir og sér. Þá má líka nota í allskyns salöt og ýmsa rétti.
Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.
Ætur hluti 100 %
|
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 94 g
|
|
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 0.9 g
|
Trefjar 1.5 g
|
Kolvetni 4.3 g
|
Fita 0.2 g
|
kj 97
|
kcal 23
|
Steinefni |
|
Járn 0.6 mg
|
Kalk 15 mg
|
Vítamín |
|
A Ret. ein 100 µg
|
B1 0.04 mg
|
B2 0.03 mg
|
Niacin 0.7 mg
|
C (askorbínsýra) 20
|
Tómatar eru vítamínríkir, einkum er mikið af A- og C-vítamíni í þeim, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru. Í þeim eru fáar hitaeiningar sem gerir þá upplagða sem megrunarfæði.
Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum tómötum áður en þeir koma í verslanir.