Eldpipar Carolina Reaper Hybrid

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið

Carolina Reaper Hybrid er eldpipar af ættinni Capsicum chinensis. Eldpipar og paprikur eru þurraldin og flokkast grasafræðilega sem ber, en þar sem fræin eru ekki umlukin neinu aldinkjöti þá vaxa þau í himnum á innanverðum aldinveggjunum.
Bragðefnið sem gefur tilfinninguna um að kveiknað sé í munni þess sem leggur sér hann til munns heitir capsaicin og vex á innan verður aldininu. Capsaicin finnst í mestu magni á himnunni sem umlykur fræ eldpipra. Paprikur sem eru af sömu tegund innihalda lítið sem ekkert capsaicin. Bragðefni þetta hefur eflaust þróast sem varnarviðbragð plöntunnar við ágangi spendýra til að fuglar geti auðveldlega sótt í aldinin og dreift fræjunum víða, en fuglar eru ónæmir fyrir bragðefni eldpipra og því sólgnir í þá. En í staðin fyrir að fæla okkur mannfólkið frá er það einmitt þetta bragðsterka efni það sem laðar hvað flesta að eldpiprunum.
Aldinið tekur um 13 – 14 vikur að þroskast í endanlegan lit sem er hárauður. Mesti hitinn myndast þegar aldinið þroskast í sinn endanlega lit. Carolina Reaper er eldheitur eldpipar og er enn í dag sterkasti eldpipar í heimi samkvæmt heimsmetabók Guinnes. Hentugur í matreiðslu og eitt aldin getur kryddað mat fyrir stórfjölskylduna með miklum hita. Fara ætti varlega í neyslu á ferskum Carolina Reaper. Aldinið ætti alltaf að meðhöndla í hönskum þegar skorið er í kjötið og getur safinn orsakað sviða og brunatilfinningu í augum eða slímhúð ef hann berst þangað.

Geymsla

Geymsluþol eldpipra er svipað og paprikunnar en kjörhitastig hennar er nokkuð svalara. Vill jafnan hita í kringum 7-8°C og helst þá stinn og safarík í allt að 5 vikur og jafnvel lengur. Eldpiprar geta orðið fyrir kuldaskemmdum ef þeir eru of lengi í hitastigi kaldara en 4°C. Ef nota á eldpipra beint í matargerð er hægt að geyma þá í frysti og skera þá niður frosna til að setja út í mat, þannig geymast þeir í marga mánuði.

Notkun

Nota má alla hluta aldinsins, hægt er að borða hann ferskan, nota út í matreiðslu, útabúa olíu til að krydda mat eða meðlæti, sulta, súrsa eða þurrka í krydd. Habanero er mjög vinsæll í sósugerð.

 

Innihald í 100 gVatn 90 g
Næringargildi í 100 g
Orka140 kj
33 kcal
Fita0,2 g
Þar af mettuð0 g
Kolvetni6,1 g
Þar af sykurtegundir0 g
Trefjar1,8 g
Prótein0,9 g
Salt0 g
NV*
A vítamín537,5µg67%
B6 vítamín0,28mg20%
C vítamín174mg218%
Kopar0,17417%

* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum

Carolina Reaper er ríkur af A og C vítamíni
Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur