1 íslensk gúrka, lítil
3 íslenskir tómatar
1-2 íslenskar gulrætur
hnefafylli af spínati
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir
3 cm bútur af engifer, saxaður
1/2 knippi íslensk basilíka
safi úr 1/2 sítrónu
3 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
salt
Köld pastasósa sem gott er að skella út á sjóðheitt pasta. Hún geymist í fáeina daga í ísskápnum og svo má líka frysta hana.
Gúrka, tómatar og gulrætur skorið í bita og sett í matvinnsluvél ásamt öllu hinu. Látið ganga þar til allt er orðið að mauki. Smakkað til með pipar og salti (gott að nota nokkuð mikinn pipar). Sósan er góð á hvers kyns pasta og það má líka nota hana t.d. með fiski eða kjúklingi.
Höfundur uppskriftar:
Nanna Rögnvaldardóttir