Graflax snitta á gúrkubeði með sýrðum rjóma og rúgbrauði
2 rúgbrauðssneiðar
100g graflax
1d Sýrður rjómi
½ tsk Saxað dill (ef vill)
Salt og pipar
½ gúrka
1msk olívuolía
10g bleikju eða laxahrogn til skreytinga
Rúgbrauð skorið í hæfilega sneið og stungið út, t.d. með skot glasi eða öðru ca 3-4cm í þvermál.
Graflax skorin til og settur ofan á rúgbrauðið. Getur verið í sneiðum, kubbum eða bara hverju sem hentar.
Sýrði rjóminn settur í skál með dilli og salti og pipar. Hrært saman
Gúrka skorin langsum og kjarnhreinsuð. Skorin þunnt á ská og velt uppúr góðri ólívuolíu.
Sýrði rjóminn settur yfir laxinn og hrogn sett í miðjuna.
Gúrkusalatið lagt á disk og rúgbrauðssnitturnar settar ofaná
Höfundur uppskriftar:
Ylfa Helgadóttir
Eigandi veitingastaðarins Kopars og meðlimur í Kokkalandsliði Íslands