Djúpsteiktar súrar gúrkur með gráðostasósu
1 krukka sýrðar íslenskar gúrkur eða gúrka sem búið er að leggja í pækil. 321 hlutföll edik,vatn,sykur
2dl brauðraspur
1 egg
½ dl mjólk
1dl hveiti
5d djúpsteikingarolía
Gráðostasósa
1dl gráðostur
1 dl majones
1 dl sýrður rjómi
1 hvítlaukur
Salt og pipar
Safi úr 1 sítrónu
Hveiti sett í skál, egg og mjólk slegið saman í aðra skál, og brauðraspur settur í 3ju skálina.
Pikluðu gúrkurnar eru skornar í sneiðar og þær lagðar í hveitið, síðan eggjablöndu og loks brauðrasp.
Olían hituð í þykkpotna pott eða pönnu og þegar hún hefur náð ca 160-180°c gráðum þá eru gúrkurnar settar útí og steiktar þar til gullinbrúnar.
Veiddar uppúr pottinum og lagðar á pappír eða viskustykki og olíunni leyft að leka úr.
Majones, sýrður rjómi og gráðostur er sett í ská og ostur mulin gróflega með gaffli.
Hvítlaukur raspaður útí og smakkað til með salti, sítrónu og pipar.
Höfundur uppskriftar:
Ylfa Helgadóttir