Niðursoðið rauðkál
gefur hátíðarstemmningu
350g rauðkál
300 ml Ribena sólberjasaft
200ml edik (epla eða rauðvíns)
50ml vatn
Setjið 50ml af vatni í pott ásamt rauðkálinu og saftinni. Látið sauðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 30 mínútur, bætið þá edikinu við og sjóðið áfram í 15 mínútur.