Salat

Með marineruðum sveppum

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 250 g íslenskir kastaníusveppir eða hefðbundnir
  • 2 vorlaukar, saxaðir smátt
  • 3-4 msk steinselja, söxuð
  • 5-6 basilíkublöð, söxuð
  • 1 msk ferskt rósmarín, saxað (nota má ýmsar aðrar kryddjurtir)
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
  • 100 ml ólífuolía
  • 1/2 sítróna
  • 1 gúrka
  • 4-5 tómatar, vel þroskaðir
  • 1 búnt Grand eða Heiðmerkursalat
Leiðbeiningar:

Sveppirnir skornir í þunnar sneiðar.

Kryddjurtunum blandað saman í skál ásamt pipar og salti.

Olíunni hrært saman við og síðan safanum úr sítrónunni. Sveppirnir settir út í og blandað vel. Látið standa í um hálftíma.

Salatið rifið niður og dreift á fat eða í víða, grunna skál.

Tómatarnir og gúrkan skorið niður í báta og dreift í hring ofan á salatið og síðan er sveppunum ausið í miðjuna.

Kryddleginum sem eftir er í skálinni dreypt yfir.