Sælkerasamlokur

Fljótlegt og gott

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 8 sneiðar af góðu, grófu brauði

  • Ólífuolía eftir þörfum

  • Mauk úr sólþurrkuðum tómötum (eða rautt pestó)

  • Klettasalat

  • 3 tómatar, vel þroskaðir

  • 2 kjúklingabringur, steiktar

  • 1 ostarúlla með blönduðum pipar frá Ostahúsinu

Leiðbeiningar:

Þykkbotna panna hituð, svolítil ólífuolía sett á hana og brauðsneiðarnar steiktar við góðan hita þar til þær hafa tekið dálítinn lit á báðum hliðum.

Meiri olíu bætt við eftir þörfum en brauðið á ekki að vera löðrandi í olíu (einnig má rista brauðið í brauðrist).

Sneiðarnar eru svo smurðar með svolitlu tómatmauki eða pestói.

4 sneiðar settar á diska, klettasalati dreift á þær, tómatarnir skornir í þykkar sneiðar og raðað ofan á og síðan eru kjúklingabringurnar skornar í sneiðar þvert yfir og raðað ofan á tómatana.

Ostarúllan skorin í sneiðar og raðað þar ofan á og brauðsneiðarnar sem eftir eru lagðar yfir allt saman.