Balsam plómutómatar

Með tagliatelle

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 6-8 plómutómatar, þroskaðir
  • 4 msk ólífuolía
  • 1 tsk sykur, helst hrásykur
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
  • 1/2 tsk basilika  
  • Balsamedik
  • 300 g pasta, t.d. tagliatelle
  • Hnefafylli af íslensku klettasalati
Leiðbeiningar:

Ofninn hitaður í 140°C.

Tómatarnir skornir í fjórðunga eftir endilöngu. Dálítilli olíu dreift í eldfast mót og tómötunum raðað í það (hýðið látið snúa niður).

Svolitlum sykri dreift yfir, tómatarnir kryddaðir með pipar, salti og e.t.v. þurrkaðri basiliku, og síðan er balsamedikinu ýrt yfir ásamt afganginum af olíunni.

Sett í ofninn og bakað í 45-60 mínútur, eða þar til tómatarnir eru hálfþurrir og unaðslega bragðmiklir.

Pastað soðið í saltvatni samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, hellt í sigti og síðan hvolft í skál eða á fat.

Olíunni af tómötunum ýrt yfir og klettasalatinu blandað saman við.

Tómötunum raðað ofan á.