Waldorfsalat

Með kínakáli

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 dós sýrður rjómi (18%)

  • 100 ml rjómi, þeyttur

  • 3 msk majónes (má sleppa)

  • 1 tsk hunang (eða sykur eftir smekk)

  • Hvítur pipar

  • Salt

  • 1/2 kínakálhaus, lítill

  • 2 epli

  • 150 g blá og/eða græn vínber, helst steinlaus

  • 75 g valhnetukjarnar

  • e.t.v. nokkur blöð af Grand- eða Heiðmerkursalat

  • Íslensk steinselja til skreytingar

Leiðbeiningar:

Sýrður rjómi, þeyttur rjómi, majónes og hunang sett í skál, hrært vel saman og kryddað með pipar og salt.

Kínakálið skorið í mjóar ræmur.

Eplin afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í litla bita.

Vínberin skorin í tvennt og hneturnar grófmuldar (nokkrir valhnetukjarnar og nokkur vínber tekin frá til að skreyta með).

Kínakáli, eplum, valhnetum og vínberjum blandað saman við sýrða rjómann.

Sett í fallega skál, sem e.t.v. er búið að klæða innan með blöðum af salati og skreytt með vínberjum, hnetukjörnum og e.t.v. steinselju.