Tómatasalat með osti

Basilika og timían

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 Rósasalat

  • 800 g tómatar, stórir og vel þroskaðir

  • 1 ostarúlla með lauk og blönduðum pipar frá Ostahúsinu

  • nokkrar timíangreinar (má sleppa)

  • ½ knippi basilika

  • 2 msk furuhnetur

  • 2 msk rifinn parmesanostur

  • Safi úr ½ sítrónu

  • Nýmalaður pipar

  • Salt

  • 100 ml ólífuolía

Leiðbeiningar:

Salatið tekið sundur, skolað, þerrað og blöðunum raðað á fat eða stóran disk.

Tómatarnir skornir í sneiðar og ostarúllan einnig.

Raðað ofan á salatblöðin og svolitlu timían dreift yfir.

Basilikan, furuhneturnar og parmesanosturinn sett í matvinnsluvél eða blandara og maukað.

Sítrónusafa, pipar og salt hrært saman við og síðan er ólífuolíunni þeytt saman við smátt og smátt.

Hluta af sósunni er svo dreypt yfir salatið og afgangurinn borinn fram í lítilli skál.