Heitt kartöflusalat

Með sellerí og beikon

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 500 g kartöflur, helst litlar
  • 100 g beikon
  • 3 msk ólífuolía
  • 1 stöngull sellerí
  • Nýmalaður pipar
  • E.t.v. salt
  • 1 msk vínedik
  • 1 tsk dijon-sinnep
  • 2 msk rauðlaukur, saxaður smátt  
Leiðbeiningar:

Sjóddu kartöflurnar þar til þær eru nærri alveg meyrar.

Helltu þá vatninu af þeim og skerðu þær í helminga eða fjórðunga, eftir stærð.

Skerðu beikonsneiðarnar í bita og steiktu það á pönnu þar til það er stökkt. Taktu það þá af með gataspaða og settu í skál.

Bættu olíu á pönnuna og settu kartöflurnar á hana. Steiktu þær við góðan hita í nokkrar mínútur. Lækkaðu þá hitann, bættu mestöllu selleríinu á pönnuna, kryddaðu með pipar og svolitlu salti og láttu krauma í nokkrar mínútur í viðbót; hrærðu oft í kartöflunum.

Taktu þær svo upp með gataspaða og settu í skálina með beikoninu. Helltu feitinni af pönnunni í litla skál og þeyttu ediki, sinnepi og rauðlauk saman við.

Helltu yfir kartöflurnar, bættu við afganginum af selleríinu og blandaðu vel.