images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Allar tegundir | Salöt og súpur | Súpur | Heitir réttir | Ofnréttir | Partýbakkar 


Blómkál með rúsínum og furuhnetum


Blómkálið snyrt, skipt í kvisti og soðið í saltvatni í 4-5 mínútur, eða þar til það er rétt meyrt. Á meðan eru furuhneturnar ristaðar á þurri pönnu þar til þær eru rétt farnar að taka lit. Olía, balsamedik, pipar og svolítið salt þeytt saman í skál og rúsínunum hrært saman við. Blómkálinu hellt í sigti og látið renna vel af því og síðan er því hvolft í skálina og blandað vel. Rúsínum og furuhnetum blandað saman við og látið standa smástund. Að lokum er basilíkunni blandað saman við. Þetta er gott bæði volgt og kalt, eitt sér eða sem meðlæti með steiktu eða grilluðu kjöti.

Höf:
Nanna Rögnvaldsdóttir

 

 

 

Gefðu þessari uppskrift einkunn

6-800 g íslenskt blómkál
salt
2 msk furuhnetur
4 msk ólífuolía
1 msk balsamedik
nýmalaður pipar
6 msk rúsínur
nokkur basilíkublöð

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hvaða árstíð finnst þér skemmtilegust ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is