images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Allar tegundir | Salöt og súpur | Súpur | Heitir réttir | Ofnréttir | Partýbakkar 


Kínakálsalat með núðlum

Kínakálið skorið í mjóar ræmur og sett í stóra skál. Núðlurnar muldar gróft og settar í aðra skál ásamt sykurbaununum. Vatn hitað að suðu, hellt yfir og látið standa í 3-5 mínútur, en síðan er núðlunum og baununum hellt í sigti og látið renna vel af þeim. Baunirnar þurfa ekki meiri suðu. Blandað saman við kínakálið, ásamt kasjúhnetunum. Olía, sojasósa, balsamedik og sykur þeytt saman, hellt yfir og blandað vel. Þetta salat er gott með ýmsum austurlenskum mat en einnig með t.d. steiktum kjúklingi og soðnum eða steiktum fiski.
Gefðu þessari uppskrift einkunn
1 íslenskt kínakálhöfuð, fremur stórt
1 pakki skyndinúðlur
100 g sykurbaunir (má sleppa)
75 g kasjúhnetur
3 msk olía (t.d. sólblómaolía)
3 msk sojasósa
2 msk balsamedik
2 msk sykur

 

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is