 Í ríkissjónvarpinu mánudaginn 4.júní var sýndur fyrsti þáttur af fimm sem fjalla
um heilsufarsvandamál samtímans. Í þessum fyrsta þætti komu fram ýmsar uggvænlegar
staðreyndir um margt í heilsufari okkar Íslendinga sem betur mætti fara með bættum
og breyttum lífsstíl.
Fram kom að lífsstílssjúkdómar samtímans stafa af:
Röngu mataræði
Ofáti
Streitu
Reykingum
Hreyfingarleysi
Þessir áunnu sjúkdómar eru t.d. hjartasjúkdómar, sykursýki II (insúlínóháð) og
þunglyndi (t.d. vegna streitu)
Margir reykja þrátt fyrir að vita að tóbaksreykingar eru lífshættulegar.
Líkur eru á að þriðja hvert dauðsfall Íslendinga á aldrinum 35-70 orsakist af
sjúkdómum sem rekja má til reykinga.
Allir vita að hreyfing og líkamsrækt er holl, stuðlar að góðri heilsu og getur
komið í veg fyrir ýmsa hættulega sjúkdóma. Rangt mataræði, hreyfingarleysi og
reykingar eru talin valda um 80% ótímabærra kransæðasjúkdóma
Talið er að offita muni verða eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál aldarinnar.
Íslendingar á aldrinum 45-64 ára hafa þyngst að meðaltali um 7 kg á síðustu 20
árum.
Sykursýki II stafar meðal annars af offitu. Því hefur verið spáð að sykursýki
II muni tvöfaldast á næstu 25 árum.
70% kostnaðar heilbrigðiskerfisins er vegna langvinnra sjúkdóma. Talið er að
um helmingur fólks á sjúkrahúsum séu þar vegna sjúkdóma sem stafa af röngum lífsstíl.
Streita veikir ónæmiskerfið og getur hún orsakað ýmsa sjúkdóma. Rannsóknir hafa
sýnt að konur sem þjást af langvarandi streitu eru í 50% meiri hættu á að fá brjóstakrabbamein
en þær sem ekki þjást af streitu.
Með því að temja okkur heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, aukum við líkurnar
til mikilla muna á því að lifa heilbrigðu og góðu lífi alla ævi. Með heilbrigðu
líferni spörum við þjóðfélaginu verulegar fjárhæðir sem hægt væri að nota til
ýmislegs annars, eins og eflingu menntakerfisins og betri þjónustu við aldraðra
Þessar staðreyndir hljóta að fá okkur til að hugsa um hvað við getum gert í okkar
málum. Hugsum við vel um heilsuna eða má margt betur fara? Við berum sjálf ábyrgð
á heilsu okkar og því er það súrt að geta sjálfum sér um kennt þegar veikindin
banka á dyrnar.
Breytum því til betri vegar STRAX, bæði fyrir okkur sjálf og afkomendur okkar.
Höf;
Alma María Rögnvaldsdóttir
Hjúkrunarfræðingur |