images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Bændur | Hvað er ylrækt - vörur | Hvað er útirækt - vörur | Vistvæn ræktun | Lífræn ræktun 


· Auðsholt
· Brún
· Flúðasveppir
· Flúðajörfi
· Friðheimar
· Garðyrkjustöð Sigrúnar
· Gróður
· Gufuhlíð
· Heiðmörk
· Hveratún
· Hveravellir
· Jörfi
· Laugaland
· Laugarland Flúðum
· Melar
· Reykjaflöt
· Silfurtún
· Sólbyrgi
· Varmaland
· Varmalækur
· Víðigerði
· Ösp
Reykjaflöt

Hjónin Lárus Daníel Stefánsson og Stefanía Bjarnadóttir keyptu Garðyrkjustöðina Reykjaflöt árið 2003 en þar hafði verið stunduð garðyrkja frá árinu 1970. Lárus og Stefanía höfðu lengi átt sér þann draum að gerast bændur í sveit en Lárus hafði unnið í áburðarverksmiðju í 20 ár. Eftir að þau höfðu verið bústjórar á kjúklingabúi í Mosfellsbæ langaði þau ekki aftur í borgina. Þau gerðust því grænmetisbændur á Reykjaflöt og una hag sínum vel.

Á Reykjaflöt rækta þau paprikur í 1500 fermetrum gróðurhúsa og eru einnig með gulrætur í útirækt á 5 til 6 hekturum lands. Ársframleiðslan er um 20 tonn af papriku og 100 tonn af gulrótum. Lárus og Stefanía stunda vistvæna ræktun og beita lífrænum vörnum á paprikurnar og sjá býflugur um að frjóvga þær. Paprikurnar eru svo tíndar í höndunum og þær flokkaðar og þeim pakkað á staðnum áður en þær fara til neytenda.

Gulræturnar eru teknar upp með vélum en þær eru flokkaðar í höndunum og einnig pakkað á staðnum. Gróðurhúsin á Reykjaflöt eru hituð með vatni úr borholu á svæðinu sem gefur 150 gráðu heitt vatn. Lárus og Stefanía nýta einnig heita vatnið við útiræktunina og vex hluti gulrótanna í heitum jarðvegi sem  hefur verið lagður hitalögnum. Grænmetið er tínt tvisvar í viku og sent einu sinni í viku frá garðyrkjustöðinni til neytenda. Lárus og Stefanía vinna hlið við hlið við ræktunina og á sumrin vinna börnin þeirra þrjú einnig á staðnum. Á álagstímum eru fleiri kallaðir til og eru um sex til sjö ársverk við Garðyrkjustöðina Reykjaflöt.

Lárus og Stefanía una hag sínum vel í sveitinni. Lárus syngur meðal annars í kirkjukórnum og einnig halda þau nokkra hesta. Þau leggja áherslu á einfalda ræktun frekar en mikið úrval og sérhæfa sig í paprikum og gulrótum sem þau sinna af natni.

Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is